Loftkælibúnaður frá Carrier
Carrier hefur þróað og selt loftkælibúnað í 100 ár og er þekkt fyrir framúrskarandi gæði og fallega hönnun. Vörulínan er mjög breið til að sinna mismunandi þörfum til loftkælingar.
Veljið flokk að neðan til að fá frekar upplýsingar um búnaðinn. Hér er ekki um tæmandi upptalningu að ræða einungis brot af helstu gerðum.
Færanleg tæki og gluggatæki
Loftkældar lausnir

"AIR FOR LIFE" tæknin frá Carrier
(pdf)
Carrier hefur þróað loftkælibúnað sem inniheldur kerfi sem hreinsar loftið um leið og kælt er. Kerfi þetta kallast "AIR 4 LIFE". Loftkælibúnaður með slíku kerfi kælir og síar loftið og gefur um leið frá sér neikvætt hlaðnar jónir. Allt þetta hjálpar til við að eyða bakteríum, ryki og lykt auk þess að halda réttu hitastigi.