North Star 
Fyrirtækið er eitt stærsta fyrirtæki heims í framleiðslu Ísvéla. Fyrirtækið er bandarískt og með höfuðstöðvar í Seattle. Fyrirtækið hefur mikla og langa reynslu framleiðslu ísvélaframleiðslu. Kælitækni hefur um árabil átt mikið og gott samband við North Star og hafa fyrirtækin einnig átt gott samstarf í þróun og hönnun lausna sem mörg fyrirtæki í sjávarútvegi njóta.
Skelísvélar eru aðalframleiðsla North Star eru vélarnar framleiddar í stærðum á bilinu 3 - 50 tonn á sólarhring. Þær eru fáanlegar hvort heldur fyrir freon eða ammóníak, fyrir dælukerfi eða með fallkút.
Ísverksmiðjur eru framleiddar af North-Star. Verksmiðjurnar eru gjarnan afgreiddar með sjálfvirku rökukerfi og/eða ísblásarakerfi allt eftir óskum kaupandans.
North Star
Bæklingur um North Star skelísvélar![]()
Geneclace

Fyrirtækið er franskt og framleiðir skelísvélar. Fyrirtækið framleiðir vélar í ýmsum stærðum og gerðum. Afköst vélanna eru á bilinu bilinu 0,5 - 50 tonn á sólarhring. Þær eru fáanlegar hvort heldur fyrir freon eða ammóníak, fyrir dælukerfi eða með fallkút.
Vélarnar eru fáanlegar afgreiddar með vélakerfi í stærðum upp í 26 tonn, hvort heldur sem er með vatnskældum eða loftkældum eimsvala.
Sérstakar vélar eru framleiddar fyrir skip. Þessar vélar eru fáanlegar upp í 5,5 tonn á sólarhring, hvort heldur er fyrir ferskvatn eða sjó.
Ísgeymslur og íssíló eru einnig fáanleg frá Geneglace, með eða án afgreiðslukerfa.
![]()
Scotsman
Fyrirtækið er ítalskt og framleiðir skelísvélar í ýmsum stærðum og gerðum.
MAR vélarnar eru til í afköstum á bilinu bilinu 350 - 2200 kg. á sólarhring. Vélarnar eru fáanlegar hvort heldur sem er fyrir ferskvatn eða sjó, til nota á landi eða á sjó og einnig með eða án vélakerfis.
EVA vélarnar eru til í afköstum á bilinu bilinu 1,5 - 24 tonn á sólarhring. Vélarnar eru fáanlegar hvort heldur sem er fyrir ferskvatn eða sjó, til nota á landi eða á sjó og einnig með eða án vélakerfis.
![]()