Küba kæli- & frystiblásarar
Kælitækni hefur selt Küba kæli- & frystiblása um nokkurt skeið. Um er að ræða tvær megin gerðir Economy line og Classic line.
- Ýmsir aukahlutir fáanlegir
- Stuttur afgreiðslutími frá verksmiðju, allt niður í fáeina daga eða af lager
Allir blásarar á lager eru með 7mm lamellubili (..B.-.. gerð) og með rafmagnsafhrímingu (
.E-..)
Kælitækni er með á lager ýmsar gerðir af blásurum
úr Economy línunni hjá Küba.
Küba Economy line
Junior DF blásarar, stærðir 0,4 2 kW, litlir nettir blásarar í loft, upp í 3ja viftu, sídd 180mm, henta í litla kæla og frysta.
Compact DF blásarar, stærðir 1,5 10 kW, nettir blásarar í loft, upp í 4 viftu, sídd 315mm, henta í ýmsa kæla og frysta.
Market plus SP blásarar, stærðir 1,2 52 kW, nettir kubbar, upp í 5 viftu, henta í ýmsa kæla og frysta þar sem álag er mikið og allt niður í -25°C
Comfort DP blásarar, stærðir 2,2 28 kW, tvíátta blásarar, upp í 4 viftu, henta þar sem þörf er á minni lofthraða, stillanlegur hraði á viftum, fræbærir í t.d. ávaxtakæla, mjólkurkæla og vinnurými
![]()
Reiknistokkur er ágætt hjálpartæki sem auðveldar að velja hentugan blásara út frá gefinni klefastærð.
Einnig má skrá sig inn á heimasíðuna hjá Küba (velja Download) og þar má hlaða niður nytsamlegum gögnum, forritum o.fl.
Download síða
Minnum einnig á Classic Line blásarana en þar
eru m.a. hinir vel þekktu SG blásarar frá Küba sem eru
löngu þekktir fyrir endingu og gæði.
Vörur úr classic línunni ætti að velja þegar um er að ræða ópakkaða vöru, langtímageymslur og þar sem álag
er mikið og raki.
Küba Classic line
Classic SG C bæklingur
Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Kælitækni.