ISS velur Eloma ofn frá Kælitækni
Mikill vöxtur hefur orðið á veitingasviði og afgreiðir ISS nú yfir 800 hádegisverði á
dag til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Nú um mánaðarmótin flutti miðlægt eldhús ISS í nýtt fullkomið eldhús sem getur annað yfir 2000 málsverðum á dag. Hjarta eldhúsa eru oft gufuofnarnir og völdu forráðamenn veitingaþjónustu ISS Eloma gufuofn frá Kælitækni. Eloma gufuofnar eru þýskir og með þeim bestu á markaðnum en þess má geta að stofnendur Eloma voru meðal stofnenda Rational á sínum tíma.
Á myndinni hér til hliðar má sjá Andreas Jacobsen yfirmatreiðslumann ISS við hlið Eloma Gufuofnsins.