Krapakerfi um borð í Engey
Mörg af helstu fiskiskipum íslenska flotans notast við lausnir frá Kælitækni. Má þar nefna krapakerfi um borð í Engey RE 1 sem tekið var í notkun í byrjun sumars 2005. Krapakerfið samanstendur af alsjálfvirkum blöndutanki sem blandar saman sjó og vatni. Með því móti er hægt að velja mun lægri saltprósentu í krapann sem er mjög hentugt þegar unnið er með flök þannig að þau verði ekki of sölt. Auk þess forkælikerfi (RSW) sem annar tveimur 30 tonna ísvélum (60 tonn af hreinum ís eða 180 tonn af 30% krapa) til að kæla sjó eða sjóblöndur úr 15°C í 1°C sem fæðivatn inn á krapavélina. Einnig má nota RSW kerfið til að dæla beint í móttöku eða aðra tanka. Krapavélin sjálf er af gerðinni North Star og afkastar um 30 tonnum af hreinum ís á sólarhring. Vélin getur framleitt krapa allt að 50 % þykkum sem hún dælir hvort sem er í 12 m3 krapatank, sem er sjálfvirkur, eða beint til notkunarstaða sem eru móttaka, RSW tankar, kælikör sem og á aðra staði á vinnslulínuna þar sem talin er þörf á kælingu. Einnig er hægt að dæla frá krapatankinum á alla þessa staði. Með þessu móti er leitast við að halda sem bestu og ferskasta hráefni í gegnum alla vinnsluna og má því segja að í skipinu verði tryggt að það skili bestu fáanlegu matvælum að landi. Að þessu verki var unnið mjög náið með Rúnari Þór Stefássyni útgerðarstjóra HB Granda og hans mönnum sem og Alfreð Tulinius hjá Nautis Verkfræðistofu. Ýmsir aðilar í sjávarútveginum eru mjög spenntir fyrir þessum kerfum þar sem þau hafa reynst vel (rekstraröryggi og lítill viðhaldskostnaður sem og einfaldleiki) og hafa þann möguleika að keyra með lægri saltprósentu en aðrar vélar. Það má einnig geta þess að nú þegar eru 12 vélar af þessari útfærslu um borð í íslenskum skipum. Þær verða 15 þegar þessum afhendingum er lokið.